Þriðjudagur 1. ágúst 2006

213. tbl. 10. árg.

Þ

að var kannski ekki stórt stökk í íslenskri verslunarsögu en að minnsta kosti svolítið skref í sögu Andríkis þegar félagið opnaði bóksölu sína hinn fyrsta ágúst á síðasta ári, á frídegi verslunarmanna en nokkur hefð er fyrir því að flestir aðrir en verslunarmenn leggi niður vinnu þann dag. Bóksalan hefur nú verið opin í eitt ár og með þeim árangri að sum númerin eru með öllu uppseld en mjög hefur gengið á önnur. Þetta gengi er bóksölunni fagnaðarefni, og vonandi viðskiptavinunum líka, því ekki er annað tekið til sölu í versluninni en það sem ætla má að myndi sóma sér í bókasafni flestra áhugamanna um þjóðmál og menningu. Andríki vill nota tækifærið til að þakka þeim sem átt hafa viðskipti við bóksöluna undanfarið ár og ekki síður öðrum góðum hópi manna sem lagt hefur félaginu lið með frjálsum framlögum. Frjálsu framlögin gera Andríki kleift að kynna, auka og efla starfsemi sína með þeim hætti sem bóksalan er gott dæmi um.

Í bóksölu Andríkis eru nú til sölu þessar bækur og í öllum tilfellum er heimsending innanlands innifalin í verði.

Fjölmiðlar 2004 og Fjölmiðlar 2005 eftir hinn umtalaða blaðamann, Ólaf Teit Guðnason, geyma alla fjölmiðlapistla hans frá þessum árum. Óhætt er að segja að pistlar hans veki mikla athygli þegar þeir birtast í hverju föstudagsblaði Viðskiptablaðsins, enda eru þeir nær eina aðhaldið sem íslenskir fjölmiðlamenn sýna hver öðrum. Í bókunum rekur Ólafur Teitur dæmi eftir dæmi um óvönduð vinnubrögð, skakka umfjöllun og hreinar rangfærslur fjölmiðlamanna og er óhætt að segja að bækur hans séu hrein nauðsyn öllum þeim sem treysta á fjölmiðla um upplýsingar og fróðleik. Og hver þarf ekki að gera það? Hvor bók kostar kr. 1890 en þær eru einnig boðnar saman í pakka á kr. 3100.

Í Kommúnismanum rekur Richard Pipes, fyrrverandi prófessor við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, sögu kommúnismans í Rússlandi og fjallar um það hvers vegna Rússland hafi, þvert á spádóma Marx, orðið fyrst ríkja til að verða kommúnískt. Pipes fjallar um stjórnarhætti þeirra Leníns og Stalíns, en grimmd þeirra tveggja hættir seint að koma á óvart. Þá er í bókinni rakin saga kommúnismans á heimsvísu, útbreiðslu hans til Kína og þróunarlanda, viðtökur á Vesturlöndum og kalda stríðið. Þessi fróðlega bók minnir á hvílíkt lán það var að kommúnistum auðnaðist ekki að leggja heiminn allan undir ógnarstjórn sína og hversu samstaða Vesturlanda var mikilvæg. Kommúnisminn, sögulegt ágrip, kostar kr. 1950.

Í Leyndardómi fjármagnsins setur perúski hagfræðingurinn Hernando de Soto fram uppbyggilegar hugmyndir um það hvernig kapítalismi getur skilað ábata því fólki sem oft er talið vera fórnarlömb hans og leitar svara við því hvers vegna kapítalisminn hefur fest sig í sessi á Vesturlöndum en gengið illa annars staðar. Fróðleg og skýr bók um mikilvægi eignarréttar og kapítalisma. Heimsfræg bók á sínu sviði og ekki að ástæðulausu. Leyndardómur fjármagnsins kostar kr. 2400.

Umhverfismál skipta miklu og nýjar og nýjar reglur og gjöld eru boðuð með vísan í splunkunýja heimsendaspá. Í bók sinni, Hinu sanna ástandi heimsins fer Bjorn Lomborg yfir spádóma þeirra sem hæst hafa talað um umhverfismál og skýrir hvers vegna þeir hafa haft rangt fyrir sér. Goðsagnir og heimsendaspár, byggðar á ófullnægjandi heimildum og túlkunum eru raktar með skýrum og einföldum hætti. „Jörðin er sannast sagna betri staður til að búa á þegar við skilum henni af okkur heldur en þegar við tókum við henni“, segir Lomborg, „og þetta er í raun og veru hið stórkostlega við hið sanna ástand heimsins.“ Hið sanna ástand heimsins kostar kr. 2200.

Árið 1880 kom út fyrsta hagfræðiritið á íslensku, Auðfræði eftir sr. Arnljót Ólafsson, sem studdist ekki síst við rit franska hagfræðingsins Fréderic Bastiats. Rúmri öld síðar var bókin endurútgefin að verðleikum. „Hitt er merkileg staðreynd að árið 1880 skuli jafn fámenn útkjálkaþjóð og Íslendingar eignast jafnágætt kynningarrit á jafnungum vísindum og fræðileg hagfræði hlaut þá að teljast“, segir Gylfi Þ. Gíslason í formála hinnar endurútgefnu bókar, sem kostar kr. 2500.

Ein umtalaðasta og vinsælasta ævisaga sem út kom á Íslandi á síðustu öld var þriggja binda verk Kristjáns Albertssonar um ráðherrann og skáldið Hannes Hafstein. Í tilefni aldarafmælis heimastjórnar var ævisagan endurútgefin í styttri útgáfu og er óhætt að segja að vel hafi tekist til. Bókin er ákaflega vel skrifuð hjá Kristjáni, virkilega spennandi aflestrar og ómissandi þeim sem nokkuð vill vita að gagni um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og íslenska stjórnmálasögu. Hannes Hafstein kostar kr. 1550.

Flestir þurfa að lúta lögum í starfsemi sinni og daglegu lífi. En hvað á að vera í lögum og hvað ekki? Eru lögin einfaldlega sett til þess að hindra óréttlæti eða er þeim kannski líka ætlað að deila út réttlæti? Lögin er sígilt verk eftir Fréderic Bastiat, fyrst gefið út í Frakklandi árið 1850 en á við á öllum tímum. Lögin kosta kr. 1500.

Íslenskir vinstri menn áttu mikil samskipti við kommúnistastjórnina í Sovétríkjunum. Í Moskvulínunni rekur prófessor Arnór Hannibalsson samskipti íslenskra sósíalista við rússneska skoðanabræður þeirra sem brotist höfðu til valda árið 1917. Arnór hefur viðað sér fjölmörgum gögnum úr rússneskum skjalasöfnum og af þeim að dæma er ljóst að þessi samskipti voru mjög einhliða. Íslenskir sósíalistar fengu fyrirmæli frá Kreml um afstöðu til manna og málefna og hvernig þeir ættu að haga baráttunni hér heima. Íslenski kommúnistaflokkurinn var deild í móðurflokknum í Sovétríkjunum. Til dæmis fór það algjörlega eftir skipunum frá Moskvu hvort íslenskir kommúnistar leituðu eftir samstafi við sósíaldemókrata eða fordæmdu þá sem höfuðstoð auðvaldsskipulagsins. Gangur heimsmála fléttast inn í frásögnina enda fór afstaða íslenskra kommúnista og sósíalista til atburða í evrópskum stjórnmálum eftir skipunum frá Kreml. Þetta kom berlega í ljós þegar Hitler og Stalín gerðu griðasáttmála sinn árið 1939. Þá varð Hitler eins og hendi væri veifað alls góðs maklegur í huga íslenskra sósíalista. Í síðari hluta bókarinnar er fjallað um Halldór Kiljan Laxness og samband hans við Sovétríkin allt frá því Halldór hóf ungur baráttu fyrir málstað Stalíns og þar til hann sneri við blaðinu í Skáldatíma árið 1963, þá nýkominn á sjötugsaldur. Moskvulínan kostar kr. 1900.

Kristján Albertsson var þekktur maður á sinni tíð og hún var löng. Í minningabókinni sem við hann er kennd og Jakob F. Ásgeirsson skráði, nýtur hin þekkta frásagnarsnilld Kristjáns sín vel þegar hann rifjar upp liðna daga og bregður upp svipmyndum af vinum og samferðamönnum, svo sem Einari Benediktssyni, Jóhannesi Kjarval, Jóhanni Sigurjónssyni, Guðmundi Kamban og Ólafi Thors. Ákaflega skemmtileg bók sem kostar kr. 1890.

Jakob F. Ásgeirsson, ritstjóri Þjóðmála, skrifaði reglulega pistla í dagblöð um margra ára skeið. Á bókina Frá mínum bæjardyrum séð er safnað úrvali hinna beinskeyttu pistla hans og er þar fjallað um mál frá öðrum sjónarhóli en algengastur er í íslenskri þjóðmálaumræðu. Bókin gefur einstaka mynd af stjórnmálaþróun síðustu ára, út frá bæjardyrum höfundar síns, en í efnisorðaskrá hennar má finna flest deilumál þjóðmálanna síðustu ár. Frá mínum bæjardyrum séð kostar kr. 1550.

Annar maður sem hefur verið iðinn á ritvellinum er Björn Bjarnason, bæði sem stjórnmálamaður og blaðamaður. Ritgerðasafnið Í hita kalda stríðsins geymir skrif hans frá örlagatímum kalda stríðsins og er ómissandi hverjum áhugamanni um utanríkis- og öryggismál. Fáir hafa fjallað um þau mál af meiri þekkingu en Björn. Í hita kalda stríðsins kostar kr. 1900.

Síðast en ekki síst fæst áskrift að tímaritinu Þjóðmálum í bóksölunni en einnig er hægt að kaupa stök hefti.