SLUDURSigurður G. Guðjónsson lögmaður og forstjóri Norðurljósa hf. var í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld og ræddi um stöðu og horfur félagsins. Lét Sigurður þess sérstaklega getið, að hann vildi ekki að félagið yrði „talað í gjaldþrot“ eins og gerst hefði með annað félag, Hafskip hf., á árum áður. Þar hefðu fjölmiðlar hamast svo á félaginu að það hefði verið keyrt í þrot og menn jafnvel handteknir, algerlega að ástæðulausu. Nei það er vonandi að sá leikur verði ekki endurtekinn. En hver ætli hafi nú verið forsöngvari í þeim kór? Ekki ætlar Vefþjóðviljinn að svara því en Sigurður getur kannski, ef hann vill, borið þá spurningu upp næst þegar hann boðar til fundar í stjórn Félags um forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar. Það er að segja, ef ekki er búið að leysa það merka félag upp. Það væri skaði.
Laugardagur 23. febrúar 2002
54. tbl. 6. árg.