Föstudagur 7. september 2001

250. tbl. 5. árg.

Víða um lönd þrífast menn sem hafa ekki heyrt af því að það sé tóm lygi að Evrópusambandið þvælist fyrir Evrópubúum og að forkólfar sambandsins rói að því öllum árum að auka völd sín og áhrif. Sömu menn virðast ekki heldur hafa verið upplýstir um að það sé líka tóm lygi eða „vanþekking“ að Evrópusambandssinnarnir reyni jafnt og þétt að því að draga úr vægi þjóðríkjanna í þeirri von að fyrr en síðar heyri þau sögunni til. En þetta er sem sagt allt lygi. Meðal þess sem margir ímynda sér er að í Bretlandi hafi undanfarna mánuði staðið mikil deila um það hvort breskum borgurum skuli heimilt að setja litla mynd af breska fánanum á bílnúmeraplötur sínar eða hvort þeir verði að láta sér nægja að notast við hinn hjartfólgna fána Evrópusambandsins.

Þjóðlegar breskar númeraplötur. The Mail on Sunday hefur þegar látið útbúa númerið EU 5T UFFED, með kveðju til Brussel.
Þjóðlegar breskar númeraplötur. The Mail on Sunday hefur þegar látið útbúa númerið EU 5T UFFED, með kveðju til Brussel.

Jæja, meðal þeirra sem hafa sýnt þessa vanþekkingu eru bresk stjórnvöld, fjölmiðlar og fjöldi almennra borgara á Bretlandseyjum. Þannig telja þessir fáfróðu aðilar að í apríl síðastliðnum hafi verið boðaðar nýjar og strangar reglur, þess efnis að ökumenn sem voga sér að nota númeraplötur sem sýna nokkurt annað þjóðartákn national symbol en hinar fallegu og vinsælu stjörnur Evrópusambandins skuli sektaðir um allt að 1000 sterlingspundum.

Þessar fyrirætlanir sem breskir fjölmiðlar hafa af vanþekkingu kallað „Brussels-inspired rules“ hafa hins vegar vakið takmarkaða hrifningu meðal Breta. Hið víðlesna blað, The Mail on Sunday efndi til baráttu gegn þessum fyrirætlunum og nú hefur komið hik á ráðherra Verkamannaflokksins. Er nú svo komið, að breska samgönguráðuneytið hefur tilkynnt að Evrópusambandið hafi samþykkt að reglur þessar verði sveigjanlegri. Hinar nýju reglur höfðu áður gert ökumönnum tvo kosti: Annað hvort hefðu þeir Evrópusambandsfánann og stafina GB á númeraplötum sínum eða ekkert. Fyrir utan númerið sjálft að sjálfsögðu. En nú er sagt að þeir í Brussel hafi ákveðið að leyfa einnig stafina SCO fyrir Skota, CYM fyrir Walesverja og ENG fyrir Englendinga.

Já, þeir eru líbó í Brussel. En þjóðfánarnir eru þeim þyrnir í augum. Hins vegar varð andstaðan við þessar ráðagerðir svo megn í Bretlandi að breska ríkisstjórnin hugleiðir nú hvort rétt sé að láta undan og eru menn farnir að spá því að borgurunum verði innan fárra mánaða leyft að aka um með mynd af fána landsins á númeraplötunum. Nú kann einhverjum að finnast þetta smámál eins og svo margt annað. En þeim, sem finnst þetta smávægilegt og jafnvel hlægilegt deiluefni, mætti verða það umhugsunarefni að höfðingjunum í Brussel er bara ekki skemmt. Þeim þykir þetta ekkert smámál. Og af hverju ætli það sé?