Laugardagur 18. október 1997

291. tbl. 1. árg.
Stjórnlyndir menn hafa oft sagt frjálshyggjuna vera  frumskógarlögmál. Það kann vel að vera að baráttan um viðskiptavini á frjálsum markaði geti verið hörð en það er sóknin að kjötkötlum hins opinbera einnig. Þeir sem minnst mega sín troðast ekki síst undir þegar vel skipulagðir þrýstihópar herja á ríkisvaldið. Því má ekki gleyma að baráttan á markaðinum snýst um að gera öðrum til hæfis og hagnast á því. Ásóknin í sjóði hins opinbera snýst hins vegar eingöngu um að ná sem stærstum skerf óháð þörfum annarra.

Kjartan Magnússon ritar grein í DV í fyrradag þar sem bendir á að opinber afskipti geti virkað eins og frumskógur fyrir nýgræðinginn í atvinnulífinu. Gefum Kjartani orðið: „Of mikil umsvif hins opinbera draga úr svigrúmi einkafyrirtækja og einstaklinga. Sérstaklega bitnar þetta á nýjum fyrirtækjum. Ný fyrirtæki eiga bágt með að klofa yfir háa þröskulda, hvort sem þeir eru gerðir úr miklum sköttum, reglugerðafargani eða óréttlátri samkeppni frá opinberum fyrirtækjum. Nýgræðingurinn má ekki kafna í frumskógi opinberra afskipta. Borgarstjórn Reykjavíkur verður að sjálfsögðu að taka þátt í því að halda þessum frumskógi í skefjum. En þá þarf að snúa af braut R-listans sem hefur hækkað skatta og gjöld á einstaklinga og fyrirtæki. Í vaxandi alþjóðlegri samkeppni þurfa aðstæður fyrirtækja hér á landi að vera betri en fyrirtækja í öðrum löndum. Við verðum að bæta okkur upp flutningskostnað á hráefni hingað til lands og kostnað við að koma vörunni á markað. Vinnulöggjöf og kvaðir á atvinnulífinu hér verða að vera frjálslegri en í samkeppnislöndum okkar. Ef við stöndum þannig að málum er einnig von til þess að erlend fyrirtæki sjá sér hag í því að setjast hér að.“

Nokkrir þátttakendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafa sett upp heimasíður. Við sögðum frá heimasíðu Kjartans Magnússonar í síðustu viku en Anna F. Gunnarsdóttir, Ágústa JohnsonBaltasar Kormákur, Eyþór Arnalds, Guðlaugur Þór  Þórðarson, Inga Jóna Þórðardóttir og  Kristján Guðmundsson státa einnig af slíkum síðum.