Mánudagur 23. júní 1997

174. tbl. 1. árg.

Örvænting hefur gripið um sig hjá þeim sem gert hafa gróðurhúsaáhrifin…
að leiðtoga lífs síns. Ekkert bólar á þeim afleiðingum, sem fylgismenn gróðurhúsaguðsins hafa spáð, verði ekki dregið úr útblæstri koltvísýrings og annarra svonefndra gróðurhúsalofttegunda. Þvert á móti hefur tíminn leitt í ljós að kenningin um gróðurhúsaáhrifin hefur verið notuð til að hræða stjórnmálamenn og alþjóðastofnanir eins og Sameinuðu þjóðirnar til að ausa fé í rannsóknir. Ósvífin umhverfisverndarsamtök hafa einnig notað kenninguna til að fá fólk (og félagsgjöldin sem þeim fylgir) til liðs við sig. Stuðningsmennirnir hafa því gripið til þess ráðs að dylgja um heiðarleika þeirra sem efast hafa um að nægar vísbendingar séu um að hiti muni hækka, heimskautaís bráðna og lönd fara í kaf. Dæmi um þetta er í DV í dag þar sem sagt er frá nýrri bók sem snýst ekki um að draga fram sannanir fyrir gróðurhúsakenningunni heldur að sverta þá sem efast hafa.
Á vegum Sameinuðu þjóðanna er stofnun sem nefnist Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC) og helgar sig gróðurhúsaáhrifunum. Í nýjustu skýrslu stofnunarinnar um loftslagsbreytingar frá 1995 segir: „Ekki eru til næg gögn til að slá því föstu að varanlegar breytingar hafi orðið á loftslagi eða veðurfari á jörðinni á þessari öld.“

Guðmundur Bjarnason, umhverfisráðherra, er í New York á ráðstefnu…
Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál ásamt fríðu föruneyti. Ráðstefnan er framhald Ríó ráðstefnunnar sem fram fór 1994 og fræg varð að endemum. Athygli vekur að formaður Landverndar er með í för og greiðir ríkið ferðakostnað hans. Einnig er fulltrúi frá Æskulýðssambandi Ísland í slagtogi með ráðherranum á kostnað skattgreiðenda. Ekki er vitað til að auglýst hafi verið eftir áhugasömu fólki í ferðina. Án þess að slík auglýsing væri þó næg röksemd fyrir því að ríkið bjóði fólki í utanferðir.