Laugardagur 21. júní 1997

172. tbl. 1. árg.

Nýlega kom út bókin FACTS NOT FEAR – …
A Parent’s Guide to Teaching Children about the Environment eftir Michael Sanera og Jane S. Shaw. Í bókinni fjalla höfundar um ýmsar kenningar umhverfisöfgamanna sem ratað hafa sem staðreyndir í kennslubækur fyrir börn. Er hlýnun andrúmslofts jarðar vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa staðreynd? Leiðir fjölgun mannkyns til hungurs og þurrðar náttúruauðlinda? Er eyðing regnskóganna yfirvofandi? Er súrt regn óyfirstíganlegt vandamál? Er eyðing ósonlagsins jafn stórt vandamál og gefið er í skyn? Er heimurinn að drukkna í sorpi? Borgar sig að endurvinna bara til að endurvinna? Hér er tímabær bók á ferðinni en hún fæst nú hjá Laissez Faire Books.

Það er vart tilviljun og að á sama tíma og kenningar…
félagshyggjufólks um að án víðtækra ríkisafskipta:
muni ein stétt arðræna aðra (kommúnistar, sósíalistar og sósíaldemókratar)
muni hinn æðri kynþáttur verða villimönnum að bráð (þjóðernissósíalistar)
muni annað kynið kúga hitt (feministar)
hafa glatað tiltrú fólks hefur ný kenning komið til sögunnar sem réttlæta á aukin ríkisafskipti á öllum sviðum. Þessi kenning gerir ráð fyrir að án víðtækra ríkisafskipta:
muni maðurinn eyða náttúrunni (umhverfisverndarsinnar).