Miðvikudagur 14. maí 1997

134. tbl. 1. árg.

Hong Kong er eitt frjálsasta þjóðfélag heims þótt…
breyting kunni að verða þar á hinn 1. júlí næstkomandi þegar fulltrúar félagshyggjunnar mæta frá Kína til að taka við stjórnartaumunum. Um síðustu áramót voru sett lög í Hong Kong sem banna mismunun eftir kynferði og eru það fyrstu lögin um það efni sem sett hafa verið þar í landi. Í tímaritinu HKCER Letters sem gefið er út af Hagfræðistofnun Hong Kong háskóla var nýlega birt grein eftir Wing Suen þar sem fram kemur að þótt engin lög um þessi efni hafi verið í Hong Kong sé launamunur karla og kvenna minni en í löndum eins og Þýskalandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og Sviss og sá sami og í Noregi og Austurríki en í öllum þessum löndum hafa verið lög í gildi sem kveða á um sömu laun fyrir sömu vinnu áratugum saman.

Enda segir Wing Suen í grein sinni: „Slagorðið um sömu laun fyrir…
jafnverðmæta vinnu er tálsýn. Í slagorðinu felst grundvallarmisskilningur á verðmæti vinnu. Verð er nefnilega huglægt. Hlutlægar upplýsingar geta ekki komið í stað frjáls markaðar við að ákveða svo dæmi sé tekið hvort demantar eða vatn sé verðmætara. Á sama hátt er vonlaust að ákveða án markaðar hvort vinna heimspekings eða götusópara er verðmætari.“ Og lokaorðin í greininni eru: „Aukin hagsæld kvenna er fremur markaðsöflunum að þakka en ríkisafskiptum.“