Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kvartaði nokkuð undan því fyrir kosningar að kosningabaráttan væri amerísk. Það sem öðru fremur einkennir kosningar vestan hafs er mikil skrautsýning á frambjóðendum. Sú persónudýrkun er ekki ósvipuð því sem R-listinn viðhafði einmitt um Ingibjörgu Sólrúnu, en aðrir frambjóðendur listans sáust vart og lítt var minnst á málefni. Allar auglýsingar R-lista snerust um Ingibjörgu og eina umfjöllunin um aðra frambjóðendur tengdist máli sem kallað er Arnarsson og Hjörvar og var ekki uppáhalds umræðuefni R-listans.
Ofan úr Ríkissjónvarpi berast svo þær fregnir að í umræðuþætti kvöldið fyrir kjördag hafi auglýsinga- og ímyndarhönnuður R-listans setið andspænis borgarstjóra í myndverinu og fjarstýrt kjálkabeinunum hans! Er þetta sennilega í fyrsta og eina sinn sem ímynd íslensk stjórnmálamanns er orðin svo þaulskipulögð (amerísk) að hann má ekki opna munninn í sjónvarpssal án þess að ímyndarskaparinn gefi merki um hvenær má hlæja, hvessa röddina, segja Árni minn o.s.frv.
Þessi ímyndarhönnuður – leikstjóri borgarstjóra – er forsprakki GSP-almannatengsla. Svo skemmtilega vill til að á þessu ári hafa GSP-almannatengsl fengið á fimmtu milljón króna úr sjóðum Reykjavíkurborgar til að láta afrek R-lista líta vel út í fjölmiðlum. Í öllu kapphlaupinu þessa dagana að fletta ofan af spillingu og sóun almannafjár er athyglisvert að enginn skuli hafa fjallað um þessi almannatengsl borgarstjóra.