„Heildræn stefnumótun í ríkisrekstri“ er lausnarorð dagsins hjá opinberum stofnunum. Sjálfsagt veit enginn með vissu hvað þetta þýðir, ekki frekar en sjálfbær þróun, lífsleikni, umframhagnaður eða nútímavæðing. Af orðanna hljóðan að dæma mætti þó ætla að með „heildrænni stefnumótun“ vilji menn marka skýra stefnu sem er samkvæm sjálfri sér.
Nú eru tvær ástæður jafnan nefndar  	fyrir sérstökum skattaafslætti sjómanna. (En  	með sjómannaafslættinum hafa sjómenn 1.423 krónur  	í persónuaflsátt á dag á meðan aðrir  	þurfa að láta 767 krónur duga.). Annars vegar nefna  	menn hve hættulegt sjómannsstarfið er og hins vegar eigi  	sjómenn erfitt með að lifa hefðbundnu fjölskyldulífi  	vegna fjarvista.  	
Hnefaleikar eru einnig áhættusamt starf en engum  	hefur dottið í hug að veita hnefaleikaköppum skattaafslátt.  	Þvert á móti eru þeir ofsóttir af yfirvöldum,  	eignir þeirra gerðar upptækar og þeir leiddir fyrir  	dómara.  	
Vændi, sem sagt er elsta atvinnugreinin, fer ekki með  	góðu móti saman með hefðbundnu fjölskyldulífi  	þótt slíkt þekkist vissulega. Þeir sem  	stunda vændi fá þó ekki sérstakan skattaafslátt  	og yfirvöld líta starf þeirra fremur óhýru  	auga.    	
Hér virðist því nokkuð ósamræmi og ekki úr vegi að grípa til „heildrænnar stefnumótunar“. Það verður annað hvort gert með því að veita hnefaleikaköppum og starsfólki í vændi skattaafslátt eða með því að banna sjómennsku. Hin svonefnda sjómannaforysta virðist hrifnari af seinni kostinum um þessar mundir.