Myndir ársins

Lagt á ráðin á félagsfundi hjá Samfylkingunni í Reykjavík.

Hér eru nokkrar þeirra mynda sem birtar hafa verið á þessum vettvangi á árinu.

Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni fyrir þingkosningar var þessi listi sem sýndi ótrúlega fábreytni kynja. Vart þarf að koma á óvart að framboðslisti með frambjóðendur af aðeins tveimur kynjum hafi átt erfitt uppdráttar í kosningum í fjölmenningarsamfélaginu.

samfylking_kyngreining

 

Boðað var til þingkosninga eftir nýju ákvæði í stjórnarskrá stjórnlagaráðs um að þegar Illugi Jökulsson, Birna Þórðardóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson lemja saman í olíutunnu á Austurvelli skuli gengið til kosninga.

utifundur

 

Hið opinbera tekur drjúgan hluta sjálfsaflafjár fólks. Um 45% landsframleiðslunnar er hirt í skatta. En það segir ekki alla söguna því viðbótarkrónur sem menn afla geta lent í hærri skatti, jaðaráhrifum skatt- og bótakerfanna.

vasareiknir

 

Bæði ríki og heimilin héldu áfram að greiða niður skuldir sínar og íslensk heimili skulda nú minna en heimili margra annarra Evrópulanda.

skuldir_rikis_heimila

 

Íslensk orkufyrirtæki hafa dregið úr sölu raflátsbréfa, svonefndra upprunavottorða á raforku. Nú er meðalrafmagnsreikningur á Íslandi aðeins að 17% fyrir kol og 12% fyrir kjarnorku.

raforkusala_uppruni

 

Stærsti hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er frá framræstu landi.

utblasturco2_2012

 

Svonefnd eymdarvísitala fyrir Ísland, samanlögð verðbólga og atvinnuleysi, hefur ekki mælst lægri.

eymdarvistitala

 

Andstæðingar álframleiðslu, brennslu jarðefnaeldsneytis, einnota umbúða, plasts og kjötáts mótmæltu við heimili eins ráðherrans í maí. Þeir nærðust á pylsum úr einnota plastumbúðum sem þeir grilluðu með kolum á álbakka.

Hver þarf Facebook og internetið þegar hægt er að svíða náttúruna með kolagrilli?