Helgarsprokið 3. júní 2012

Vefþjóðviljinn 155. tbl. 16. árg.

Hér hefur hin undarlega stofnun Íbúðalánasjóður oft komið til umfjöllunar. Hún átti sinn þátt í því að blása upp bólu á fasteignamarkaði á árunum 2004 til 2008. Það var eitt helsta loforð Framsóknarflokksins í alþingiskosningum 2003 að jafnvel skólakrakkar í foreldrahúsum myndu eiga kost á 90% lánsfé til íbúðarkaupa frá sjóðnum fengi flokkurinn atkvæði. Eftir kosningar var flokkurinn í lykilstöðu og náði að knýja þetta fram að hluta ásamt því mikilvæga baráttumáli Samfylkingarinnar og Halldórs Ásgrímssonar að Halldór Ásgrímsson yrði forsætisráðherra.

Fyrir þá sem aðhyllast mikið eftirlit ríkisins með fjármálastarfsemi er sjóðurinn líka mikilvæg lexía þótt hún sé heldur dýr fyrir skattgreiðendur, jafnvel þegar haft er í huga að þessi nemendahópur er auðvitað erfiður. Sjóðurinn er nefnilega undir algerri stjórn og eftirliti ríkisins en þarf engu að síður reglulega á fé úr ríkissjóði að halda til að verða ekki gjaldþrota.

Arnar Sigurðsson skrifaði grein í Morgunblaðið á fimmtudaginn þar sem hann fór tæpitungulaust yfir stöðu sjóðsins.

Fyrst sýnir Arnar fram á að sjóðurinn er vaxtaokurbúlla.

Ef svonefndur „tilgangur“ sjóðsins er skoðaður kemur í ljós að starfsmenn hans hyggjast „stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks til að eignast og leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.“ 

Leið Íbúðalánasjóðs til heljar er vitaskuld vörðuð góðum ásetningi eins og „öryggi, jafnrétti, möguleika og viðráðanleg kjör“. Íbúðalánasjóður er hinsvegar ekkert annað en millilag, n.k. heildsala sem tekur peninga að láni og lánar út aftur, rétt eins og venjulegir bankar gera. Ef vaxtaþóknun sjóðsins er skoðuð mætti ætla að reksturinn ætti að vera vel „viðráðanlegur“ fyrir bankamenn hins opinbera en svo er hins vegar ekki. Vextir þeir sem sjóðurinn borgar eru u.þ.b. 2% en útlánin, þ.e. hin (ó)viðráðanlegu kjör« til almennings eru hinsvegar 4,7%. Vaxtamunurinn samsvarar því ekki minna en 100% álagningu!

Sjóðurinn snuðar ekki aðeins lánþega sína heldur einnig almenna skattgreiðendur.

Þrátt fyrir vaxtaokrið er rekstur sjóðsins hinsvegar svo galinn að skattgreiðendur þurfa að leggja sjóðnum til tugi milljarða að auki. Verðtryggð útlán sem sjóðurinn veitir almenningi bera verðbólguáhættu, sem almenningur hefur enga forsendu til að meta, í ofanálag við hæstu raunvexti í heimi. Ein afleiðing er að vanskil við sjóðinn nema nú hvorki meira né minna en 160 milljörðum!

Þetta lánaform kennir sjóðurinn við „öryggi“ en lætur þess ógetið að um öryggi fjármagnseigenda sem lána sjóðnum er að ræða. Þegar öllu er á botninn hvolft kemur í ljós að Íbúðalánasjóður er slæmur kostur fyrir lántakendur en afleitur kostur fyrir skattgreiðendur en reksturinn einn og sér kostar yfir 2 milljarða á ári.

Og sjóðurinn skaðar ekki aðeins almenning með vaxtaokri og fjáraustri úr ríkissjóði.

Sirkus fáránleikans nær þó fyrst hámarki þegar framkvæmd markmiðsins um að auðvelda fólki að kaupa fasteignir er skoðað. Sjóðurinn berst hatramlega gegn lækkun fasteigna- og leiguverðs með því að kaupa sjálfur u.þ.b. 2000 fasteignir þeirra sem ekki hafa staðið í skilum. Markmiðið með þessum uppkaupum er að halda uppi fasteignaverði og gengur sjóðurinn svo langt að leigja ekki út íbúðir á þeim stöðum þar sem „offramboð“ gæti verið til staðar að mati spákaupmanna sjóðsins.

Í þessu sambandi er rétt að benda á að fasteignir vega um þriðjung í vísitölu neysluverðs og að hver prósenta í verðbólgu kostar almenning, beint og óbeint um 20 milljarða á ári. Gera má ráð fyrir að uppgreiðslur hjá sjóðnum aukist. Það kemur sjóðnum afar illa því til að tryggja velferð fjármagnseigenda er sjóðnum óheimilt að uppgreiða sín lán samsvarandi. Varlega áætlað þyrfti um 100 milljarða til að geta staðið straum af því misræmi sem framundan er.

Lán annarra lánþega í landinu hækka þannig vegna tilrauna sjóðsins til að halda uppi fasteignaverði.

Og hvað þykir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð um að opinber lánastofnun haldi uppi fasteignaverði? Ætli þeim þyki það ríma við lögfestan tilgang sjóðsins um að auðvelda fólki að eignast húsnæði á viðráðanlegum kjörum?