F jármál stjórnmálaflokka eru sumum stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum ákaflega hugstæð þegar drepa þarf málum á dreif og æsa upp umræður í fjölmiðlum. Þessir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar láta reglulega að því liggja að þeir hafi sérstakan áhuga á að birta fjármál flokkanna opinberlega, en að vilja að vísu ekki hafa frumkvæði að slíku og hafa þess vegna ekkert birt sjálfir. Og í nefnd allra stjórnmálaflokka sem starfaði fyrir nokkrum árum kom einnig fram það sameiginlega sjónarmið þeirra að ekki væri ástæða til að breyta núverandi fyrirkomulagi með því að birta upplýsingar úr reikningum flokkanna og er þá vitaskuld verið að tala um upplýsingar um það hverjir styrki flokkana. Í bréfi sem Björn Bjarnason birti í pistli á heimasíðu sinni í gær, þar sem hann vísaði til þingræðu sinnar frá því deginum áður, koma fram athyglisverðar upplýsingar um fjármál eins stjórnmálaflokks landsins, reyndar þess flokks sem ákafast hefur gengið fram í tali um birtingu upplýsinga um fjárstuðning við stjórnmálaflokka, nefnilega Samfylkingarinnar. Bréfið var ritað Stefáni Jóni Hafstein og var einnig sent Birni, enda hafði bréfritari ekkert á móti því að efni þess færi víða. Bréfritari var Þröstur Emilsson starfsmaður Samfylkingarinnar í síðustu kosningum og núverandi fréttamaður á Fréttablaðinu.
Í bréfinu kemur fram að þáverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og núverandi þingmaður flokksins, Björgvin G. Sigurðsson, hafi upplýst bréfritara um það að Jón Ólafsson, sem þá var aðaleigandi Norðurljósa, hafi veitt umtalsverðum fjármunum til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem þá var borgarstjóri R-listans. Í bréfinu segir meðal annars orðrétt:
…Samfylkingin hefði ekki fengið krónu frá Jóni Ólafssyni og oftar en einu sinni afþakkað allan stuðning úr þeirri áttinni. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar fullyrti hins vegar þegar ég maldaði í móinn að ISG hefði jú vissulega þegið umtalsverða fjármuni úr vasa Jóns Ólafssonar. En Hún kæmi Samfylkingunni og þar með R-listanum ekkert við og mætti alls ekki setja það undir sama hattinn í þessu máli, þ.e. umfjöllun um borgarstjórnarkosningar og fjármál. |
Þetta eru fyrir ýmissa hluta sakir athyglisverðar upplýsingar. Eitt af því sem er athyglisvert – og er í samræmi við það sem Vefþjóðviljinn hefur margoft bent á – er að auðvelt er fyrir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka sem vilja sýnast óháðir tilteknum fyrirtækjum eða fjársterkum einstaklingum, að fara í kringum reglur um fjárstuðning við flokka. Samfylkingin fer núna í kringum eigin reglur um að birta allar fjárhæðir sem eru 500.000 krónur eða hærri með því að þiggja aðeins styrki sem eru innan við þá fjárhæð, til dæmis 499.999 krónur. En þrátt fyrir að í lögum væri kveðið á um að birta ætti allar upplýsingar um styrki þá væri engin leið að koma í veg fyrir það að þeir stjórnmálamenn eða stjórnmálaflokkar sem vilja leyna stuðningi láti styrkja aðra, til dæmis frambjóðanda til borgarstjóra.
Þar sem bréfritari starfar nú á Fréttablaðinu ættu að vera hæg heimatökin fyrir blaðið að fletta ofan af þessu máli, en blaðið hefur sýnt fjármálum flokkanna talsverðan áhuga. Vefþjóðviljinn telur þó ólíklegt að því verði slegið upp á næstunni á forsíðu blaðsins að talsmaður Samfylkingarinnar, sem nú situr á þingi fyrir flokkinn, þiggi „umtalsverða fjármuni“ frá fyrirtækjum eða fjársterkum einstaklingum. Vefþjóðviljinn telur einnig ólíklegt að „Frétta“blaðið muni leggja í mikla rannsóknarvinnu við að finna út fleiri og nýlegri tengsl Samfylkingarinnar við þá sem kunna að styrkja flokkinn, annaðhvort beint eða í gegnum einstaka frambjóðendur hans. Ólíklegt er að slík rannsókn myndi styrkja þá heimsmynd sem daglega reynt er að draga upp í blaðinu.