6. febrúar 1997: Ungi ,,frjálslyndi“  þingmaður Framsóknarflokksins…
Siv Friðleifsdóttir, sem sumir  héldu fyrir síðustu kosningar að boðaði breytta tíma í  þeim afturhaldssama flokki, stendur þessa dagana dyggan vörð  um fortíðina. Hún gagnrýnir hófsamar breytingatillögur  stjórnar ÁTVR um að leyft verði að selja létta áfenga  drykki í venjulegum verslunum og að ÁTVR hætti að dreifa  tóbaki. Það er með miklum ólíkindum hvað sumir þingmenn  hafa litla trú á því að almenningur í landinu geti hagað  sér skynsamlega. Það er bara óskandi að það tengist ekki  þeirri staðreynd að þessi almenningur kaus þá á þing.
6. febrúar 1997: Heilbrigðisráðherra  hefur fellt niður…
afslátt sem ellilífeyrisþegar höfðu á  afnotagjöldum Ríkisútvarps. Þetta leiðir hugann að því  að starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa ekki  þurft að greiða þessi fráleitu en lögboðnu gjöld þrátt  fyrir að lög mæli skýrt fyrir um það. Þeir hafa heldur  ekki greitt skatt af þessum 25. þúsund króna hlunnindum. Ögmundur  Jónasson, þingmaðurinn síkáti, er formaður BSRB og  þar með stéttarfélags starfsmanna Ríkisútvarpsins. Hann  hefur oft lýst þeirri skoðun sinni að allir eigi að greiða  afnotagjöldin (þótt hann hafi ekki gert það sjálfur þegar  hann var fréttamaður á RÚV). Hann hefur líka fárast yfir  undandrætti frá skatti. Hér er því baráttumál sem hann  ætti að taka upp á arma sína og slá þar með tvær flugur  í einu höggi: Láta starfsmenn RÚV greiða afnotagjöldin og  fækka undanskotum frá skatti. Áfram Ögmundur!