|
enn
muna kannski eftir því þegar klappað var fyrir manninum sem kom á hjóli á
landsfund vinstri grænna. Einhverjir muna kannski líka eftir því að þegar
vinstri grænir í R-listanum fóru með stjórn umhverfismála í Reykjavík
fjölgaði bensínstöðvum í borginni um 50%, borgarbúar slógu höfuðborgaheimsmetið
í bílaeign og farþegum í strætó snarfækkaði. En ekki nóg með það. Um leið og
þeir komust í ríkisstjórn tók varaformaður þeirra, Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra, ákvörðun um að byggja gríðarlegt bílageymsluhús undir 1600
bíla við tónlistarhúsið þótt ekki séu til peningar fyrir því í ríkissjóði. Til
að steypa botnplötu bílageymslunnar þurftu steypubílar að fara 400 ferðir eins
og aðstandendur hússins greindu frá með talsverðu stolti.
Og áfram heldur dekur vinstri grænna við einkabílismann. Í gær spurðust út
áætlanir ríkisstjórnar þeirra um að fella niður lán á einkabílum í stórum stíl.
Þumalputtareglan er: Því stærri og dýrari bíll því rausnarlegri verður
niðurfellingin á lánum. Þeir sem lögðu ekkert fé sjálfir í bílakaupin fá meira
fellt niður en hinir sem voru svo vitlausir af safna fyrir hluta kaupverðs.
Var ekki örugglega bæði klappað og hlegið að manninum á hjólinu?
óhann
Hauksson blaðamaður á DV fékk verðlaun Blaðamannafélags Íslands á dögunum. Einn
þeirra sem hafði veg og vanda að valinu með setu í dómnefnd var Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Lúðvík hefur áður
getið sér gott orð sem mannþekkjari. Til að mynda árið 1997 þegar hann var
spurður í Vikublaðinu hvaða stjórnmálamanni lífs eða liðnum hann hefði
mest álit á? “Lenín hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann var
traustur foringi,” svaraði Lúðvík. Jóhann Hauksson besti blaðamaðurinn. Lenín
besti stjórnmálamaðurinn.
Jóhann hefur sem kunnugt er sótt um það hjá fjármálaráðherra að
skattgreiðendur greiði framvegis laun til hans fyrir lofgjörðir hans um
vinstristjórnina. Helstu aðstandendur DV munu ekki sjá sér það fært mikið
lengur. Jóhann þarf ekki að kvíða niðurstöðunni í fjármálaráðuneytinu þótt
umsækjendur séu margir. Það er engin ástæða til að ætla annað en að ráðning í
embætti blaðafulltrúa ráðuneytisins verði jafn fagleg og ráðning Svavars
Gestssonar sem formanns samninganefndar um Icesave.
|