| Þriðjudagur 31. ágúst 2010 |
|
243. tbl. 14. árg.
|
|
En hvaða áhrif hafa útgjöld og aðrar sértækar aðgerðir til að örva efnahagslífið til lengri tíma litið? Samdrátturinn undanfarin tvö ár er vegna ýmiss konar sértækra aðgerða hins opinbera á árunum þar á undan. Vextir voru lækkaðir til að koma í veg fyrir samdrátt eftir 2001 og gerð var meiriháttar tilraun til að lána fólki fé til húsnæðiskaupa sem átti litla möguleika á að endurgreiða það þegar vextir yrðu betur tengdir raunveruleikanum. Bæði fólk og fyrirtæki gerðu áætlanir sem byggðu á fölskum forsendum hinna niðursettu vaxta stærstu seðlabanka heimsins. Fjármálakerfi Vesturlanda riðaði til falls við höggið frá þessum kerfisbundnu mistökum í efnahagslífinu. Kreppan undanfarið er annað nafn yfir nauðsynlegt hreinsunarstarf. Markaðurinn er að sópa burtu óarðbærum fyrirtækjum. Það er einn mikilvægasti þáttur markaðarins að vonlaus fyrirtæki hverfi. Án afskipta hins opinbera myndi þetta jafnan gerast jafnt og þétt. En því miður fær markaðurinn sjaldnast að vinna þetta hreinsunarstarf sitt í friði. Það er alltaf skammt í kosningar. Stjórnmálamenn vilja tryggja sér endurkjör og grípa því til örvandi aðgerða á ný. Þeir halda lífi í óarðbærum fyrirtækjum með ríkisstyrkjum og efna til nýrra átaksverkefna. Enginn þeirra leggur í kosningar án þess að geta bent á örvandi aðgerðir. Enginn vill segja almenningi þær fréttir að til þess að rjúfa vítahring hagbólu og kreppu þurfi menn að bíða þess að hreinsunarstarfinu ljúki svo fyrirtæki geti á ný starfað á eðlilegum forsendum. |
| Mánudagur 30. ágúst 2010 |
|
242. tbl. 14. árg.
|
|
Nú hefur húsið verið tekið í notkun og er sagt heita Hof. Þar mun vera um gælunafn að ræða, því raunverulegt nafn er vitaskuld Óhóf.
Hvernig hefðu álitsgjafar, fjölmiðlar og umræðumenn tekið því, ef Ólafur F. Magnússon hefði skrifað slíkt um sig og aðra í borgarstjóratíð sinni? |
| Helgarsprokið 29. ágúst 2010 |
|
241. tbl. 14. árg.
|
|
Það er auðvitað fráleitt að verðlauna eina atvinnugrein með þessum hætti. Hvers vegna ekki bílaviðgerðir eins og húsaviðgerðir? Hvers vegna ekki líka viðhald á líkama og sál, hárgreiðslu, nudd, alls kyns námskeið eða nýtt hjónarúm? Hvers vegna er endurgreiddur virðisauka- og tekjuskattur af málun á vegg en ekki málverki á sama vegg? Svo kynni einhver að benda á að þessar endurgreiðslur eru aðeins af „karllægum“ störfum; aðeins fyrir múrara, pípara og smiði en ekki hárgreiðslukonuna eða snyrtifræðinginn. En hér er auðvitað ríkisstjórn jafnréttis, jafnréttisstofa, jafnréttisráð, jafnréttisnefndir, jafnréttisfulltrúar og fjöldi með meistaragráðu frá fyrrverandi fjölbraut starfar við gerð jafnréttisáætlana hjá stofnunum og fyrirtækjum. Þar með hafa áhugamenn um jafnréttismál náð helstu markmiðum sínum. Þótt hægt færi á stundum hafði á undanförnum áratugum tekist að einfalda skattkerfið nokkuð. Það átti þó til að mynda ekki við um vörugjalda- og tollakerfið sem er ekki aðeins óréttlátt á allan hátt heldur gjörsamlega óþolandi fyrir þá sem reyna fyrir sér með innflutning og ekki síður neytendur sem hafa ekki hugmynd um hvort skattar eru 7 eða 70% af vöruverði. En flestir hefðbundnir skattar höfðu verið einfaldaðir, undanþágum og þrepum fækkað. Flestir gátu nefnt þá skattprósentu sem þeir greiddu af tekjum sínum og höfðu sæmilega hugmynd um hvaða skattur af fjármagnstekjum biði við lok árs. Á rúmu ári hefur ríkisstjórn gegnsæis tekist að eyðileggja þennan árangur og rúmlega það. Tekjuskatt einstaklinga þarf helst að reikna út í þar til gerðum forritum í mörgum þrepum og búið er að flækja fjármagnstekjuskattinn með þrepum og undanþágum. Óþarft er að taka fram að allir hafa skattarnir verið snarhækkaðir. Og kjörtímabil velferðarstjórnarinnar er rétt að byrja. Sér til halds og trausts í skattamálum fékk ríkisstjórnin ríkisskattstjóra áranna 1999 - 2006. Enginn hefur spurt um ábyrgð ríkisskattstjórans á árunum fyrir hrunið þótt mjög móðins sé að tala um að menn „axli ábyrgð“ sem gegndu ábyrgðarstöðum á þeim tíma, ekki síst í eftirlitsstofnunum eins og embætti ríkisskattstjóra. Indriði H. Þorláksson var frægur fyrir óbilgirni sína gagnvart almennum skattgreiðendum á Íslandi meðan hann var ríkisskattstjóri og skýrir það ef til vill hvers vegna öll veigameiri mál fóru framhjá honum. Hann var upptekinn við pizzur og konfektkassa á meðan skíðaskálar og einkaþotur fóru hjá. Á stundum mátti ætla að maðurinn hefði hreina óbeit á venjulegum íslenskum skattgreiðendum. Á því fékkst raunar staðfesting þegar hann átti stóran þátt í því að semja um að íslenskir skattgreiðendur tækju á sig allar skuldbindingar einkafyrirtækis í Bretlandi og Hollandi. Verður það lengi í minnum haft að velferðarstjórnin skyldi fá mann með slíkt hugarfar í þau mikilvægu störf. Indriði vildi að almennir skattgreiðendur greiddu skuldir sem mennirnir sem hann vanræktri að hafa auga með efndu til erlendis. |
| Laugardagur 28. ágúst 2010 |
|
240. tbl. 14. árg.
|
|
Flest þessara fyrirtækja eru í samkeppni við önnur fyrirtæki sem hafa þurft að standa þrengingar síðustu ára af sér með öðrum ráðum en ríkisstyrkjum. Hve sanngjarnt er það? Ljóst er að beinn kostnaður skattgreiðenda af þessu tiltæki er verulegur enda er það ein ástæða þess að ríkið lagði Landsbankanum til gríðarlegt fé. Bankinn sjálfur er auðvitað besta dæmið um að markaðurinn fékk ekki virka og skola burtu gjaldþrota rekstri. Í staðinn var ríkissjóður Íslands skuldsettur til að halda öllu gangandi. |
| Föstudagur 27. ágúst 2010 |
|
239. tbl. 14. árg.
|
|
Í þessu samhengi vísuðu flestir til ákvæða barnaverndarlaga og álitu að þau bæri að skilja þannig að á prestum væri þar gerð tilkynningarskylda sem slægi alla þagnarskyldu út. Vefþjóðviljinn er raunar alls ekki sannfærður um að það sé réttur skilningur, en horfum fram hjá því að sinni. Einu væri gaman að fá svar við: Ef lögum yrði breytt og sett inn sérstakt ófrávíkjanlegt ákvæði, þess efnis að hvað sem á dyndi mætti prestur ekki rjúfa trúnað sem hann hefði heitið skjólstæðingi, hvað þá? Hvað myndu þeir gera vefskrifararnir, vígðir sem óvígðir, sem hópuðust gegn prestinum sem vildi virða trúnaðarskylduna? Myndu þeir, eftir slíka breytingu, telja að presti bæri að halda trúnaðinn og setja hann ofar „hagsmunum barnsins“? Varla myndu þeir líta svo á að þeir væru „hafnir yfir lögin“.
Ef marka má fréttamenn Ríkisútvarpsins þá hafa síðustu daga allar sakir sannast á látinn biskup kirkjunnar, því fréttamenn bæði útvarps og sjónvarps nota nú framsöguhátt en ekki viðtengingarhátt þegar þeir segja frá brotum sem nafngreindar konur „urðu fyrir“ af hans hálfu fyrir rúmum þrjátíu árum. Viðmælendur eru spurðir alvarlega hvort þeir trúi ekki örugglega ásökununum, og eftir á verða vangaveltur um hvort svarað hafi verið af nægilegri sannfæringu. Geta menn af sanngirni heimtað slík svör af þessum mönnum um látinn mann? Er hægt að ætlast til afdráttarlausra svara frá þessum mönnum? Nú er ljóst að fréttamennirnir trúa ásökunum á biskupinn, og vafalítið yrðu þeir þá í hópi mikils meirihluta þeirra landsmanna sem hafa myndað sér skoðun á málinu, en þegar þeir eru í fréttamannshlutverkinu þá ættu þeir ekki síður að vanda sig í þessum málum en öðrum. Hitt er svo annar hlutur, hvað menn nú telja líklegast að hafi gerst, og þá einkum þegar fjölgar þeim sem segja svipaða sögu og fyrst heyrðist. Menn geta hæglega komist að niðurstöðu um slíkt með sjálfum sér, þótt þeir geti ekki hrópað hana á torgum eða krafist þess af opinberum aðilum að þeir taki undir. Flestir óbloggandi Íslendingar, og margir bloggandi, átta sig líka á því, að það getur verið mikil gjá milli þess sem menn telja líklegt að hafi gerst, og svo þess sem þeir geta fullyrt fyrirvaralaust. |
| Fimmtudagur 26. ágúst 2010 | |
|
238. tbl. 14. árg.
|
|
|
Gísli leiðir kenninguna af því að ýmsir hægri menn hafa gert athugasemd við tal hans um að bíleigendur í Reykjavík séu ómagar á hinu opinbera. Þó má vera ljóst að bíleigendur á höfuðborgarsvæðinu myndu stórhagnast á því að hið opinbera hætti afskiptum af gatnakerfinu en felldi á móti niður sértæka skattheimtu á bíla og eldsneyti. Gísli Marteinn hefur svo sérstakar áhyggjur af því að bílum sé lagt í stæði og yfirskyggja þær jafnvel áhyggjur hans af því að bílarnir séu á hreyfingu með tilheyrandi hávaða, mengun og látum. En er ekki borgarstjórnin hans Gísla í félagi við ríkisstjórn vinstri grænna að útbúa 1600 bílastæði innandyra við tónlistarhúsið? Mun borgarstjórnin svo ekki örugglega setja gjarðabana fyrir allt að tvö reiðhjól á afvikinn stað suðaustan við höllina? Þá geta vinstri grænir haldið landsfund þar þótt fjöldi gesta sem mæta á hjóli tvöfaldist. Þessi málflutningur er raunar dæmi um sígilt vandamál frjálshyggjumanna. Frjálshyggjumenn eru sagðir andvígir alls kyns hlutum af því að þeir vilja ekki að hið opinbera ráðskist með þá. Hvað hefur ekki Vefþjóðviljinn fengið mörg bréf frá fulltrúum menningarinnar sem telja það mikinn fjandskap við menningu að Vefþjóðviljinn hafi andæft því - frá 1997 þegar tónlistarhús átti að kosta skattgreiðendur 1.200 milljónir og fram á þennan dag þegar kostnaðurinn stefnir í 30.000 milljónir króna - að skattgreiðendur séu neyddir til að taka þátt í byggingu tónlistarhúss? Sömuleiðis máttu þær örfáu hræður sem andmæltu því fyrir áratug að hæstu bætur í sögu velferðarkerfisins rynnu til hátekjumanna í fæðingarorlofi sitja undir því að vera á móti velferð barna, jafnrétti kynjanna og gott ef ekki kynlífi líka að mati virðulegs rithöfundar. Franski rithöfundurinn og þingmaðurinn Frédéric Bastiat skrifaði árið 1850 í riti sínu Lögunum:
Egill Helgason hefur gott færi til að átta sig á þessu einmitt núna. Hann er fremur andvígur styrkjum ríkisins til landbúnaðar og fær vafalaust að heyra að hann sé andvígur landbúnaði. Þó ætti að blasa við að svo er ekki. |
| Miðvikudagur 25. ágúst 2010 |
|
237. tbl. 14. árg.
|
|
Alveg er nú magnað að Jóhanna Sigurðardóttir „hugleiði“ að segja sig úr einhverju af því að þar sé kreppa og vandræðagangur. Já það er ekki gott ef mikilvægar stofnanir eru markaðar af kreppu og vandræðagangi. Hvar skrá menn sig undan íslensku ríkisstjórninni? |
| Þriðjudagur 24. ágúst 2010 |
|
236. tbl. 14. árg.
|
|
Eitt mikilvægasta hvíldarráð frísins, er að kveikja ekki á tölvu. Fá stutt frí frá vefþrefi. Tveggja til þriggja vikna frí, þar sem ekkert minnir þreyttan huga á leiðinlegustu hluta íslenskrar þjóðmálaumræðu, getur endurnært hvern venjulegan mann og næstum tryggt honum lífsgleði í nokkra daga, eftir að heim er komið og búið er að opna tölvu. En vitaskuld er ekki öll umræða á vefnum til skammar, og myndi vefrit varla kunna við að halda slíku fram af mikilli hörku. Raunar má margt fróðlegt og áhugavert finna á vefnum, eins og nærri má geta þegar hugsað er til þess hvílíkt magn er þar af ólíku efni. En eitt það versta við íslenska stjórnmálaumræðu eru veföskrin, þar sem hrópaðar eru órökstuddar svívirðingar að fólki, aukaatriði eru gerð að aðalatriðum, marghraktar rangfærslur eru fullyrtar, glæpir bornir á nafngreint fólk, hvatt er til ofbeldis og glæpaverka og gerð hróp að þeim sem reyna að ræða mál af yfirvegun. Þetta er iðulega gert undir dulnefnum, og umsjónarmenn vefjanna virðast halda að þeir beri þá ekki ábyrgð á þessum hluta vefja sinna. Þegar slíkt hefur gengið mánuðum og jafnvel árum saman, telja stjórnvöld kominn skynsamlegan jarðveg fyrir stjórnarskrárbreytingar með hraði, og stjórnarandstaðan þorði ekki að andæfa. Á íslenskum fjölmiðlum koma reglulega upp æsingamál, þar sem vonlaust virðist að koma skynsemisorði að. Getur þá hvaða bábilja sem er orðið að viðteknum sannindum. Á dögunum var yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu svældur úr starfi, en hann hafði áratuga farsælan feril að baki og undir forystu hans höfðu rannsóknir kynferðisbrota tekið stakkaskiptum. En hann var skyndilega ákærður fyrir hugrenningaglæp og hugsanalögreglan var fljót á stað, en sú lögregla er ótrúlega vökul þegar kemur að öllu því sem tengist kynferðisbrotum. Virðist sem skynsemi og yfirvegun sé jafnan fyrsta fórnarlambið þegar umræða verður um slík mál. Er þess eflaust skammt að bíða að enginn þori að opna munninn um þau, nema til að endursegja það sem þeir treysta að hugsanalögreglan leyfi. Svo skemmtilega vill svo til að í öðrum málum eru þeir í hugsanalögreglunni geysilegir talsmenn tjáningarfrelsis og umburðarlyndis. |
| Mánudagur 23. ágúst 2010 | ||
|
235. tbl. 14. árg.
|
||
|
Eiður hlífir pólitískum samherjum ekki fremur en öðrum, í málfarshluta bloggsins. Á dögunum benti hann á þetta:
Í síðasta pistli sagði hann frá frétt um nýjan menntaskóla á Ólafsfirði:
Málfarssíða Eiðs er þakkarverð viðleitni leikmanns til að brýna fjölmiðlamenn til vandvirkni. Margir fjölmiðlamenn hugsa eflaust að þeir séu ekki svo slæmir, að minnsta kosti ekki verri en hinir. Ábendingar Eiðs ættu að verða þeim og öðrum hvatning til að vanda sig, fletta upp í bókum séu þeir ekki vissir, og reyna að forðast innihaldslausa flatneskju froðumálsins. |
| Helgarsprokið 22. ágúst 2010 |
|
234. tbl. 14. árg.
|
|
Að þessu sinni var tilkynnt að skothríðin yrði í boði fjarskiptafyrirtækisins Vodafone, þótt flugeldarnir hafi raunar verið löngu keyptir. Nýr borgarstjóri hafði efnt til umræðu um það brýna álitamál á vefsíðu sinni, og sitt sýnst hverjum. Samkvæmt ákvörðun nýs borgarstjórnarmeirihluta hafði Orkuveitan raunar staðið í fleiri ákvörðunum. Gjaldskrá skal hækkuð, forstjóri rekinn, nýr ráðinn til bráðabirgða en auglýst eftir þeim þriðja. Ekki þótti hins vegar ástæða til að ræða þau mál við borgarbúa fyrr en eftir að ákvarðanir höfðu verið teknar. Raunar er það auðvitað skiljanlegt. Slíkar ákvarðanir eiga kjörnir fulltrúar að taka og eru yfirleitt kosnir til þess. Að vísu var einn flokkur víst kosinn í einhverju allt öðru skyni í vor, að minnsta kosti ef marka má álitsgjafa og stjórnmálaskýrendur, en það breytir ekki því að sá flokkur sinnir nú hinum hefðbundnu verkefnum, enda hikaði flokkurinn ekki við að setjast í meirihluta og krefjast þess að oddviti sinn yrði borgarstjóri. Það hvort skotið skuli upp flugeldum eða ekki, skiptir ekki miklu í rekstri borgarsjóðs, þótt ágætt sé að sú spurning sé rædd. Önnur atriði skipta hins vegar mun meira máli. Reykjavíkurborg innheimtir hátt útsvar af borgarbúum, þótt útsvarið sé ekki lengur í hámarki. Einnig eru innheimtir fasteignaskattar og önnur gjöld. Það skiptir máli hvernig farið er með þessa peninga og hvort ekki megi finna leiðir til þess að taka minna af borgarbúum. Nú er hart í ári hjá ýmsum og í fréttum birtast oft reiðir stjórnmálamenn og forystumenn hagsmunasamtaka sem hafa uppi stór orð um „vanda heimilanna“. Öll „heimili“ borga skatta. Aukin skattheimta eykur á „vanda heimilanna“. Hún minnkar ráðstöfunarfé fólks og hún dregur úr möguleikum fyrirtækja, minnkar möguleika fyrirtækja til að fjölga starfsfólki og hækka laun, eykur þörf fyrirtækja til að fækka starfsfólki og lækka laun. Borgarfulltrúar, bæjarfulltrúar, alþingismenn og aðrir þeir sem fara með málefni hins opinbera, ættu að leita leiða til að lækka skatta. Frá ríkisstjórninni berast hins vegar nýjar og nýjar tillögur að hækkun skatta, með tilheyrandi byrðum á „heimilin í landinu“ og fyrirtækin. Vitaskuld leiðir skattheimta og ríkisútgjöld í framhaldi af henni ekki til fullkominnar sóunar. Ríkið skattleggur fjölda fólks og notar peninginn til að byggja brú einhvers staðar. Nokkrir menn fá vinnu við að leggja brúna og brúin styttir einhverja leið. Þetta eru kostirnir, og þá sjá vinstrimenn. En mörgum sést yfir gallana. Peningurinn sem fór í vinnu mannanna og efnið í brúna, hann var tekinn úr vösum venjulegs fólks. Það fólk fór sjaldnar út að borða, lét ekki gera við bílinn, keypti sér ekki nýja húfu þegar hin týndist í slagveðri á Hringbrautinni. Kalli kokkur missti vinnuna, Beggi bifvélavirki átti einn magran mánuðinn enn og réði ekki við afborgun á húsnæðisláninu, í Húfubúð Henríettu var minna að gera en ella. Kalli, Beggi og Henríetta gengu þungstíg út, en sáu glaðværan vinnuflokk hamast við brúarsmíði og hugsuðu: Já bara ef hið opinbera gerði nú meira svona, þá fengi maður kannski eitthvað að gera. |
|
Vef-Þjóðviljinn hóf göngu sína 24. janúar 1997. |